Fermingarboðskort - Boðskort - Fermingakort - Þakkarkort - Brúðkaupskort - Nafnspjöld - Bókaprentun - Leturprent alhliða prentþjónusta

Sími 533 3600

 
 


myndabók
Myndabók Mac eða Pc







Skil þessi síða er í vinnslu

PDF

Öruggasta leiðin til að gera PDF skrár til prentunar er að nota hugbúnaðinn Adobe Acrobat. Flest forrit bjóða upp á þann möguleika að vista út sem PDF, en fá forrit geta uppfyllt þær kröfur sem prentiðnaðurinn setur. Adobe Indesign gerir það frá og með útgáfu 2.0.

Stillingarskrár
Meðfylgjandi eru stillingaskrár fyrir Acrobat Distiller og Adobe Indesign.

Indesign: Fara í "File" valmyndina og velja "PDF Export presets" smella síðan á load.
Distiller: Fara í "Settings" valmyndina og velja "Add Adobe PDF Settings".

Sækja stillingaskrá fyrir Indesign og Distiller

Sjá frekari upplýsingar um stillingar:

Samtök iðnaðarins - RGB vinnsluferli

Helstu kostir PDF:
Bæði myndir og letur er byggt inn í PDF-skrána, ef hún er rétt gerð.
Ekkert óeðlilegt textaflæði getur átt sér stað.
Flestar PostScript-villur sem upp geta komið, koma þegar PDF- skráin er búin til en ekki við útkeyrslu á plötu/filmu.
PDF-skrár eru í flestum tilfellum minni en PostScript-skrár þar sem búið er að hreinsa burt öll óþarfa gögn.
Allar síður eru sjálfstæðar, sem þýðir að auðveldara er að vinna með margra síðna skjöl, t.d. í leiðréttingarvinnu.
Hægt er að senda PDF-skrá sem er tilbúin til prentunar á hvaða útkeyrslutæki sem er.
PDF-skrár eru mun áreiðanlegri sem skjáprófarkir.

Helstu gallar PDF:
Textaleiðréttingar eru þyngri í vöfum, í flestum tilfellum þarf að fara í upprunalegu gögnin og búa síðan til nýja PDF-skrá af viðkomandi síðu.
Skrárnar geta verið á mismunandi gæðaformum, allt frá því að vera í fullum gæðum til prentunar, niður í að vera ónothæfar og allt þar í milli.

Að búa til PDF
Til þess að búa til nothæfa PDF-skrá til prentunar verður að nota forritið Acrobat Distiller, en fyrst þarf að útbúa PostScript-skrá úr viðkomandi forriti.

Sendið PDF skjölin sem síðu fyrir síðu, öruggasta leiðin ef leiðréttingar verða nauðsynlegar. Hægt er að senda hverja síðu um leið og hún er tilbúin, óháð stöðunni á verkinu að öðru leyti.

Mikilvægt er að síður séu miðjusettar á prentfleti



DUGGUVOGI 12 - 104 REYKJAVÍK - SÍMI 533 3600 - FAX 568 0922 - NETFANG leturprent@leturprent.is